Laugardagur 4. september 2010

Færslur úr ‘Fréttir’

RISA-AFMÆLISPARTÝ Á NASA Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 2. SEPT

Höfundur: Einar Bárðar Skrifað þann 29. ágúst - 2010 Bættu við athugasemd

Núna á miðvikudaginn, 1. september, fagnar Kaninn eins árs afmæli en stöðin fór í loftið mánudaginn 1. september 2009. Fyrstu útsendingarnar voru frá Officera klúbbnum á gamla herstöðvarsvæðinu á Miðnesheiði, sem nú heitir Ásbrú. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og nú sendir Kaninn út frá nýjum höfuðstöðvum í Skeifunni 7, Reykjavík. Afmælinu verða gerð góð skil í útsendingu Kanans á miðvikudag. Vinir Kanans úr músikgeiranum taka lagið og góðvinir Kanans kíkja við og segja góðar sögur og skemmta sér og öðrum. Velunnurum stöðvarinnar er boðið í léttan hádegisverð í hádeginu á miðvikudaginn. Tekið verður á móti gestum í höfuðstöðvunum milli 11:30 og 13:30 með mat, drykk og veglegri afmælisköku.

KANINN EINS ÁRS Á MIÐVIKUDAG

Kaninn með lið á Íslandsmótinu í strandblaki

Höfundur: Þór Bæring Skrifað þann 16. ágúst - 2010 1 athugasemd

KanaliðiðUm helgina fór fram Íslandsmótið i strandblaki í Fagralundi í Kópavogi. Þór Bæring Ólafsson, morgunhani stöðvarinnar, mætti á mótið ásamt Valgeiri Bergmann og kepptu þeir fyrir hönd Kanans á mótinu. Því miður náði Kana-liðið ekki í verðlaunasæti að þessu sinni þrátt fyrir góða spilamennsku. Það gengur bara betur næst.

Sumarhvellurinn á Selfossi

Höfundur: Þór Bæring Skrifað þann 7. ágúst - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Björgvin að grillaÞað var mikið fjör á Sumarhvelli Kanans í dag á Selfossi. Það rigndi „aðeins“ á okkur en við létum það ekki stoppa okkur í því að grilla og hafa gaman með Selfyssingum. Við þökkum öllum sem kíktu á okkur í dag í „góða“ veðrinu.

Á myndinni sést Björgvin Árnason grilla í „smá“ rigningu.

Það var mikið fjör í morgun

Höfundur: Þór Bæring Skrifað þann 6. ágúst - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

ThorKaninnÞað var mikið fjör í morgunþættinum hjá mér í morgun. Við hituðum vel upp fyrir hátíðina Sumar á Selfossi en Sumarhvellur Kanans verður einmitt á Selfossi á morgun og það er um að gera að mæta á svæðið og heimsækja okkur og taka þátt í gleðinni.  

Ég gaf líka nokkur eintök af Pottþétt 53 og miða á kvikmyndina The Sorcerer’s Apprentice, sem sýnd er í Sam-bíóunum um þessar mundir. Það er alltaf nóg að gerast á Kananum. Stilltu inn á morgunþátt Kanans alla virka daga milli 6:50 – 10:00.

KIDDI CASIO VEITIR EITT VIÐTAL FYRIR VERSLUNARMANNAHELGI

Höfundur: Einar Bárðar Skrifað þann 28. júlí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Kaninn er eina útvarpsstöðin sem fær viðtal við Kidda Casio úr Sólinni frá Sandgerði veitir fyrir Verslunarmannahelgina!

Kiddi Casio í fíling – hvað á ég að spyrja hann um á morgun ? Hann vill bara tala við umboðsmann Ísland – á Kananum á morgun, fimmtudag kl 11:00

A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110