Undarlegur draumur.
Mig dreymdi stórundarlegan draum í nótt. Við hjónin vorum dáin og á leið til himna. Konan hafði dáið á undan mér. Þegar hún kom að gullna hliðinu hitti hún fyrir Lykla Pétur sem bauð hana velkomna. “Til að fá inngöngu hér, þarftu að stafa fyrir mig tveggja orða setningu. Þú ræður hvaða setningu þú stafar, en takist þér að gera það rétt færðu inngöngu í himnaríki.“ Konan mín var ekki lengi að hugsa sig um en sagði, „Ég ætla þá að stafa setninguna, ást er… Á-S-T E-R“ Lykla Pétur brosti út að eyrum og bauð frúnna velkomna inn í himnaríki. Hún er varla komin í gegnum hliðið þegar hún sér að ég er að klöngrast upp að hliðinu. “Hvað ert þú að gera hér“, spyr hún mig hissa. “Þetta er eiginlega fáránlegt. Ég lenti í bílslysi á leið úr jarðaförinni þinni, og hér er ég. Er ég kominn til himnaríkis?“ Spurði ég, aldeilis undrandi. Konan mín svaraði, „Ekki alveg, fyrst verðurðu að stafa fyrir mig.“ Ég spurði konuna, „Hvaða orð?“ Hún svaraði, „Kvartspastískt Transylvaniugrey“. Sem betur fer vaknaði ég þegar þarna var komið við sögu.






