Laugardagur 4. september 2010

Færslur úr ‘Blogg Sigga Gunnars’

UPPTÖKUR: ELEKTRA, HAFFI HAFF OG SKÍMÓ HJÁ SIGGA GUNNARS 7. JÚLÍ

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 8. júlí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Það var gestkvæmt hjá mér á miðvikudagsmorgun þegar ég hitaði upp fyrir Sumarhvell Kanans í Nauthólsvík. Þau Haffi Haff, Elektra og Gunni Óla úr Skímó kíkkuðu öll í heimsókn og ræddu um það sem framundan er hjá þeim. Stilltu inn á morgunþátt Kanans alla virka morgna milli 7 og 10!

Lestu restina af færslunni »

UPPTÖKUR: JÓN JÓNSSON Á KANANUM, VIÐTAL OG LIVE FLUTNINGUR

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 5. júlí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Jón Jónsson og Kristján Sturla kíktu á okkur Kana-menn þegar við opnuðum nýju höfuðstöðvarnar í síðustu viku. Þeir spjölluðu við okkur um tónlistina og lífið og renndu svo í tvö lög fyrir okkur. Jón er gríðarlega heitur þessa dagana og ein bjartasta vonin í íslenskri tónlist, það er a.m.k. skoðun okkar Kana-manna! Hér getur þú hlustað á viðtalið og lifandi flutning á laginu „Lately“

Lestu restina af færslunni »

EUROVISION: HÖRKU FLOTT SJÓV Í KVÖLD – MYNDIR

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 27. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Það verður boðið upp á hörku flott sjóv í kvöld en ég er ný kominn úr höllinni með stelpunum á Eurovisionblogginu. Nossarinn má vera stoltur af tæknilegu hliðinni sem er mjög flott. Hinsvegar hefur það algerlega klikkað að fá mannskap á rennslin, sem venjulega eru frekar þétt setin. Má rekja þetta til þess að þeir tóku upp á því að selja ansi dýrt inn á þau. Eitthvað hefur selst af miðum á rennslin fyrir lokakvöldið en ekki einn einasti á rennslin fyrir undankeppnirnar tvær. Þetta hefur aðeins skemmt fyrir stemmingunni á þessum rennslum. En hér eru nokkrar myndir frá því í dag af þeim keppendum sem ég tel að fara í gegn í kvöld! Lestu restina af færslunni »

EUROVISION: UNDIRRITAÐUR MISSIR ÞAÐ ÞEGAR VIÐ FÓRUM ÁFRAM! – MYNDBAND

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 27. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Hérna getið þið séð myndband frá því þegar undirritaður missti það litla við sem hann hafði þegar Ísland var tilkynnt áfram. Móðursýkin leynir sér ekki þegar beðið er eftir því að Ísland verði lesið upp!…

Lestu restina af færslunni »

EUROVISION: EVRÓPA HELTEKIN AF HERU! – MYNDIR

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 27. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Það má með sanni segja að Hera sé að slá í gegn hér í Osló. Þegar ég kom niður á hótel um hádegisbil í dag var mikill ágangur í hana, bæði frá pressunni en einnig voru ungir aðdáendur að biðja um eiginhandaráritanir. Á meðan ég var þarna komu t.d. tvær stærstu sjónvarpsstöðvar Úkraínu til að fá viðtal við hana en Valli Sport, fjölmiðlafulltrúi Heru, varð að neita þeim um það því þau voru ekki búin að bóka viðtal.

Lestu restina af færslunni »

EUROVISION: HLUSTAÐU Á VIÐTÖLIN Á NETINU (ÞRIÐJUDAGUR OG MIÐVIKUDAGUR)

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 26. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Ég hef verið duglegur að taka viðtöl við fólk hér á svæðinu. Hera Björk, Sigmar Guðmunds, portúgalir, gamlir ástralskir hommar sem voru hrifnir af Íslandi og mér……..! ásamt meira af góðgæti! :-) Hlustaðu á viðtölin hér!

Lestu restina af færslunni »

A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110