Kjóstu þann sem að þér þykir bestur!
Við hvetjum alla hlustendur að fara inn á femin.is og kjósa uppáhaldsútvarpsstöðina sína! :)
Við hvetjum alla hlustendur að fara inn á femin.is og kjósa uppáhaldsútvarpsstöðina sína! :)
Mig dreymdi stórundarlegan draum í nótt. Við hjónin vorum dáin og á leið til himna. Konan hafði dáið á undan mér. Þegar hún kom að gullna hliðinu hitti hún fyrir Lykla Pétur sem bauð hana velkomna. “Til að fá inngöngu hér, þarftu að stafa fyrir mig tveggja orða setningu. Þú ræður hvaða setningu þú stafar, en takist þér að gera það rétt færðu inngöngu í himnaríki.“ Konan mín var ekki lengi að hugsa sig um en sagði, „Ég ætla þá að stafa setninguna, ást er… Á-S-T E-R“ Lykla Pétur brosti út að eyrum og bauð frúnna velkomna inn í himnaríki. Hún er varla komin í gegnum hliðið þegar hún sér að ég er að klöngrast upp að hliðinu. “Hvað ert þú að gera hér“, spyr hún mig hissa. “Þetta er eiginlega fáránlegt. Ég lenti í bílslysi á leið úr jarðaförinni þinni, og hér er ég. Er ég kominn til himnaríkis?“ Spurði ég, aldeilis undrandi. Konan mín svaraði, „Ekki alveg, fyrst verðurðu að stafa fyrir mig.“ Ég spurði konuna, „Hvaða orð?“ Hún svaraði, „Kvartspastískt Transylvaniugrey“. Sem betur fer vaknaði ég þegar þarna var komið við sögu.
Nú byrjar ballið! Kanaklassík á Kananum alla virka daga milli 12 0g 13. Verið stillt….. :)
Lumar þú á góðri Kanaklassík? Áttu þér uppáhaldslag sem Kaninn spilaði frá árunum 1970-1985? Sendu okkur þá póst á kaninn@kaninn.is
Kaninn-komiði sæl og blessuð
Kæra dagbók,
Ég hef komist að því að það borgar sig ekki að standa í framhjáhaldi. Ég lá í rúmi í nótt við hliðina á gullfallegri konu og um tvöleitið í nótt öskrar hún, „Guð minn góður, ég heyri í manninum mínum niðri, hann er kominn heim.“ Ég vaknaði með andfælum rauk á fætur, hentist í fötin á þeim ógnarhraða sem líkamsburðir mínir þola og rauk út. Ég var kominn út um útidyrahurðina þegar ég sneri við fór aftur til baka inn í íbúðina og sagði pirraður við konuna, „En ég er maðurinn þinn.“ Konan horfði á mig glottandi og spurði, „Bíddu, hvers vegna varstu þá að hlaupa út?“ Ég er búinn að vera að reyna að tala mig út úr þessu, án árangurs.
Nú erum við búin að setja inn smá skoðanakönnun hérna hægra megin á síðunni, í sama dálki og myndböndin og pressufréttirnar eru. Endilega kjósið og látið í ykkur heyra. Ef þið eruð í stuði og viljið létta á talskjóðunni, sendið okkur nokkrar línur hérna.
Þetta er nýjasta könnunin:
Kæra dagbók,
Ég verð að viðurkenna að stundum fæ ég samviskubit yfir því hvað ég get verið harður við konuna. Ég spurði hana í morgun hvernig hún færi að því að hemja reiðina yfir því hvað ég væri oft hastarlegur við hana. Hún var að vanda með svör á reiðum höndum, „Það er nú lítið mál. Ég þríf klósettskálina þegar ég er að alveg að springa.“ Ég verð að viðurkenna ég var ekki alveg að skilja tenginguna þarna á milli. “Hvernig rennur þér reiðin við að þrífa klósettskálina?“, spurði ég forvitinn og fann að nú kynntist ég enn einum leyndardómnum í fari kvenna. “Jú, sjáðu til“, sagði hún, „Ég nota tannburstann þinn og á einhvern óútskýranlegan svínvirkar það.“