Laugardagur 4. september 2010

Færslur október, 2009

KANINN BÝÐUR ÍBÚA AUSTURLANDS VELKOMNA!!

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 30. október - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Kaninn sendir út frá Egilstöðum frá og með deginum í dag. Útsendingar hófust í dag og hljóma ansi vel segja íbúar Austurlands. Bylgjulengdin er FM103,2.

Kaninn býður íbúa Austurlands velkomna að útvarpstækjunum :)

 

Kaninn-komiði blessuð og sæl

Kanaforsýning á The Informant!

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 30. október - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Kanaforsýningin á myndinni The Informant gekk vonum framar í gærkvöldi og var salurinn troðfullur!!  Kaninn var í svo góðu skapi að við gáfum alltof marga miða :) Kaninn er jú bara svo svakalega gjafmildur. Myndin var svakalega góð og mælir Kaninn með því að þú farir á The Informant.

Fórst þú í bíó í gær?

Kynlífstilraunin nær hámarki ;)

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 29. október - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Já kynlífs-og samskiptatilraun Kanans er komin á dag 20 og 21 en eins og þeir sem hafa fylgst með vita þá tók eldra parið af skarið og byrjaði einum degi á undan! Pörin finna fyrir gríðarlegum breytingum eftir einungis 20 daga og ætla sér svo sannarlega að halda áfram eftir tilraunina að stunda kynlíf einu sinni á dag til þess að bæta sambandið. Kossar á rauðum ljósum, rassaklípingar og fleira er eitthvað sem þeim datt aldrei í hug að þau myndu stunda eaftur eftir öll þessi ár í sambúð og með börn en viti menn kynlíf á dag breytir öllu. Það hefur svo sannarlega létt þeirra lund og jafnvel börnin þeirra skynja breytingu á foreldrum sínum eftir einungis 20 daga.

Ef þú heldur að þú og maki þinn séuð of upptekin við að stunda kynlíf á hverjum þá skaltu lesa bloggin hjá pörunum okkar hér á Kanasíðunni og þá muntu sjá að tímaleysi er ekki hugtak sem þau kannast við þegar það kemur að því að stunda kynlíf.

KANINN BÝÐUR ÞÉR Í BÍÓ!

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 27. október - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Á fimmtudaginn kemur,29.október, verður haldin sérstök Kanaforsýning á gaman/spennumyndinni The Informant með Matt Damon í aðalhlutverki. Myndin verður sýnd kl.20 í SAMbíóunum Álfabakka. Nú þegar hefur Kaninn gefið 50 miða og fleiri miðar eru væntanlegir. Fylgstu vel með…

Myndin, sem er leikstýrð af Steven Soderbergh, segir frá vísindamanninum Mark Whitacre sem var rísandi stjarna hjá fyrirtækinu Archer Daniels Midland en það fyrirtæki framleiddi matvörur, dýravörur og ýmislegt fleira áður en Whitacre gerðist uppljóstrari til að koma upp um misnotkun fyrirtækisins á yfirburðastöðu sinni á markaðinum.
Ásamt öllu þessu þarf Whitacre að kljást við alvarlega geðröskun og eftir uppljóstrunina miklu er mikið álag á honum, þar sem fjallað er um hann í öllum miðlun auk þess sem hann er enn að ná sér eftir að hafa þurft að ganga með hlerunarbúnað á sér í þrjú ár. En er Whitacre sjálfur svona mikill engill…?

 

Nokkrir fróðleiksmolar:

  • Soderbergh lýsti því yfir árið 2002 að hann ætlaði að gera kvikmynd eftir bókinni The Informant sem segir frá sögu Whitacre.
  • Matt Damon bætti á sig um 10-15 kg til að líkjast hinum þéttvaxna Whitacre betur.
  • Nokkur atriði í myndinni voru tekin upp á fyrrum heimili Whitacre, stórt setur hans í Moweaqua í Illinois.
  • Matt Damon hefur verið nefndur líklegur kandidat til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í þessari mynd.

Flassbakk mynd kvöldsins

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 26. október - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Flassbakk mynd kvöldsins að þessu sinni er Clueless frá árinu 1995. Með aðaðhlutverk fara Alicia Silverstone, Stacey Dash, Brittany Murphy og Paul Rudd. Myndin er svona nútíma útfærsla á bókinni Emma eftir Jane Austin en hér getur þú horft á kynninguna…

Flosi Ólafsson og Hreyfill

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 26. október - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Frábærar minningar sem við eigum um Flosa Ólafsson og hér er ein góð…

A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110