Laugardagur 4. september 2010

Færslur nóvember, 2009

Sjö leiðir til að forðast innbrot um jólin

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 30. nóvember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

1. Ekki segja frá jólafríinu þínu á Facebook
Innbrotsþjófar fylgjast oft náið með Facebook og eru alveg jafn spenntir og þú yfir að þú sért að fara burt yfir jólin.

2. Vertu með þjófavörn
Innbrotsþjófar eru mjög þakklátir þeim sem ekki hafa þjófavörn, þar sem slík vörn fælir meirihluta innbrotsþjófa í burtu.

3. Ekki hafa hvít jól á dyraþrepinu
Innbrotsþjófar elska hvít jól og sérstaklega ef þú gleymir að biðja nágrannann um að ryðja brautina heim að húsinu þínu, því það er skýrt merki um að þú sért ekki heima.

4. Fáðu staðgengil á bílaplanið
Þetta er skýrt merki um að enginn sé heima. Þeir sem eru sniðugir fá nágranna sem eiga tvo bíla til að leggja öðrum þeirra í innkeyrsluna hjá sér á meðan þeir eru í burtu.

5. Fylltu ruslafötuna
Á tímum þegar öll venjuleg heimili losa sig við hrúgur af rifnum jólapappír, karamellupappír og matarafgöngum er heldur grunsamlegt að ruslafatan sé galtóm til lengdar. Nágranninn verður örugglega feginn að fá að losa svolítið af sínu rusli í þína tunnu ef þú biðlar til hans.

6. Mundu að jólin eru hátíð ljóssins
Heimili sem ekki er upplýst yfir jólin gæti allt eins haft á sér risastór neonskilti þar sem á stendur „Velkomnir innbrotsþjófar“. Ef þú kveikir á nokkrum lömpum með sparperum og hefur seríuna í gangi er innbrotsþjófurinn mun líklegri til að leita annað.

7. Þögn er sama og samþykki
Algjör þögn hljómar eins og fegursta tónlist í eyrum innbrotsþjófa sem vita að án jólasálma og skvaldurs er líklegt að þjófnum finnist þess virði að kanna húsið aðeins betur. Með því einu að skilja útvarpið eftir í gangi á meðan þú ferð burt geturðu tryggð að fæstir innbrotsþjófar hætta sér nær.

Tekið af
http://mbl.is/mm/folk/frettir/2009/11/29/sjo_leidir_til_ad_fordast_innbrot_um_jolin/

Gott málefni !

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 30. nóvember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Hér á Íslandi þurfa margir á hjálp að halda þessa dagana reynum að leggja þessu góða málefni lið

Getur þú tínt í einn aukapoka fyrir þá sem mest þurfa hjálp?
Við komum vörunum til þeirra sem eru í vanda.

Næst þegar þú verslar í Bónus-búðum á Reykjavíkursvæðinu, kauptu þurrmat í poka og skildu hann eftir á sérmerktum stað í búðinni eða beint til okkar að Háaleitisbraut 66 milli kl. 8-16.

Það getur verið pasta, hrísgrjón, niðursuðuvörur, kex, klósettpappír, þvottaefni eða hvað annað sem geymist vel utan kælis.
Láttu aukapokann verða AÐALpokann ;)
image001

Mynd vikunnar….

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 30. nóvember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Mynd vikunnar að þessu sinni er frá árinu 1988 og skartar þeim Michael Keaton, Geenu Davis og Alec Baldwin í leikstjórn hins sérvitra Tim Burton. Myndin fjallar um Maitland hjónin sem deyja í bílslysi og eru föst sem vofur í húsinu sínu. Ný fjölskylda flytur í húsið þeirra og eru Maitland hjónin alls ekki sátt og vilja þau burt. Þá rekast þau á særingarmanninn Beetlejuice sem ætlar að hjálpa þeim en þá fer allt á annan endann…

10 UnSexiest Men Alive

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 30. nóvember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

10. John C. Reilly

John C

 

 

 

9. Joaquin Phoenix

joaquin

 

 

 

8. Mickey Rourke

mickey_rourke

 

 

 

7. Michael Moore

Michael Moore

 

 

 

6. Randy Quaid

randy-quaid

 

 

 

5. Philip Seymour Hoffman

philip-seymour-hoffman_l

 

 

 

4. Paul Giamatti

Paul Giamatti

 

 

 

3. Justin Long

justin_long_01

 

 

 

2. Kevin Spacey

Mann's Village Theatre

 

 

 

1. Gary Busey

gary-busey

Man Cold ..

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 30. nóvember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

HAHAHAHAHHAHAA Sannur „veikur“ karlmaður

Háralitun sem fór ÚRSKEIÐIS!

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 25. nóvember - 2009 1 athugasemd

Greyið, greyið, greyið stelpan sem ákvað að lita á sér hárið heima…

Við Kristín rákumst á þessa grein í gærkvöldi og erum búnar að taka þá ákvörðun að lita ALDREI á okkur hárið sjálfar!

Kíktu á þessa grein … og láttu okkur vita hvað þér finnst

A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110