Laugardagur 4. september 2010

Færslur desember, 2009

Lag vikunnar…

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 29. desember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Lag vikunnar að þessu sinni er 100.000 volt með Sálinni hans Jóns Míns. En hljómsveitin síunga mun stíga á stokk 2.janúar nk. á Officeraklúbbnum og ljúka jólatúrnum sínum. Við Kristín ætlum að halda uppá afmælið hennar með pompi og prakt 2.janúar með Sálinni á Officeraklúbbnum. Gulli Helga mun gefa miða handa heppnum hlustendum hér í fyrramálið milli 9-13 en fyrir þá óheppnu er hægt að nálgast miða á Gallerý í Reykjanesbæ  og kostar miðinn einungis 2500kr

 

Gleðilegt Nýtt Ár með Kananum, Kristínu, Lísu og Sálinni!

Gestur Egg og Beikon í fyrramálið

Höfundur: Egg og Beikon Skrifað þann 29. desember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Peyjarnir í Egg og Beikon munu fá til sín góðan gest í fyrramálið en það verður enginn annar en EIríkur Jónsson
Munu þeir ræða fréttir ársins, góðar, slæmar og EKKERT ICESAVE!!!

Áramóta-make up

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 29. desember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Nú fer að líða að áramótum og auðvita þarf maður að hafa sig til í tak við það !
í Make up store getur þú fengið allt sem þarf til að lúkka sem best allt kvöldið..
look1
look2
look3

ÁRAMÓTADAGSKRÁ KANANS!

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 29. desember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Nú er árið 2009 senn á enda…

Það verður stútfull dagskrá hjá okkur um áramótin. En strax á Gamlársdag milli 9-12 mun Siggi Stormur stýra sérstökum áramótaþætti og heiðursgestur þáttarins verður enginn annar en Haukur Hólm fréttamaður. Saman munu þeir gera upp árið 2009 og ræða það sem þeim þótti standa uppúr.
Gulli Helga og Ásgeir Páll taka síðan við og verða saman eftir hádegi frá kl.12-15 þar sem þeir fara í loftköstum yfir árið 2009 og samþykkja Icesave frumvarpið umræðu laust til þess eins að þurfa ekki að ræða það meir!
Látunsbarkinn Bjarni Arason keyrir okkur svo inn í áramótin í rétta búningnum

Síðan á Nýrársdag munum við endurflytja allt það besta sem kom frá Tvíhöfði bræðrum þetta árið m.a.Besta flokkinn og meint samsæri gegn þeim bræðrum ásamt hvínandi Kanamúsík í bland

Ekki láta þig vanta í áramótapartí Kanans!

Kaninn-Gleðilegt nýtt ár!! :)

Og svo mynd vikunnar…

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 28. desember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Með aðalhlutverkið fer heitasti leikari EVER!

Nýjasta „Pærets“ myndin kemur út 2011! Við Kristín bíðum spenntar eftir henni

Hvað ætla Kristín og Lísa að gera um jólin?

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 23. desember - 2009 Lokað fyrir athugasemdir

Fyrsta stopp er Officeraklúbburinn á 2.í jólum

En þar verður Striks-Reunion ball þeirra Grétars og Gulla sem haldið var
á 2. í jólum í fyrra og komust miklu færri að en vildu. Um er að ræða
kjarna fólks sem skemmti sér á gamla Strikinu í Keflavík á níunda
áratuginum. Dr. Alban, 2 Unlimited og fleiri góðir gestir mæta í
hátalarana og gera þetta að 90’s partí eins og þau gerast best.

Þá ætlum við að tvöfalda okkur og fara á Players….2. í jólum -Kristín?! Áttu ekki ennþá 2földunarvélina?!

Vinir Vors og Blóma Manst ekki eftir okkur ? Vinir vors og blóma ásmt
dj Kidda „Bigfoot“ ferðast með ballgesti aftur í tímann, til áttunda
og níunda áratugarins. Stór jóladansleikur sem hefst á miðnætti og
varir fram eftir morgni. Skemmtun sem enginn ballþyrstur Íslendingur í
leit af “ fortíðar nostalgígju „má láta fram hjá sér fara, sannkölluð
„Dejavu“ stemming á Players annan í jólum.

Svo verður brjálað stuð 2.janúar í Officeraklúbbnum, en þá verðum við viðstaddar yfirdansleik Sálarinnar :) kemur sér vel að Kristín á afmæli 3.janúar….ætli Stebbi mundi vilja syngja fyrir hana afmælissönginn??

Það verður fyrsta alvöru flugeldasýningin í Officera Klúbbnum á árinu 2010. Þá ættu allir að vera búnir að safna
nægum jóla-óróa í sig til að hrista sig áfram í geggjuðu gargi með Ste Hill og Sálinni. Það eru engin böll stærri eða flottari á
Reykjanesskaganum en Sálarböllin í Offanum. Forsala verður í Gallerí í Keflavík milli jóla og nýárs.

Ekki missa af þessu!!

A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110