Laugardagur 4. september 2010

Færslur janúar, 2010

NÝ SJÓNVARPSAUGLÝSING KANANS

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 26. janúar - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Með hækkandi sól koma nýir tímar. Kananum finnst fátt skemmtilegra en að setja saman eina sjónvarpsauglýsingu eða svo. Hér fyrir neðan má sjá glænýja sjónvarpsauglýsingu sem við erum afar stolt af :)

Noah Cyrus að dansa við Ke$hu-lagið

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 15. janúar - 2010 1 athugasemd

Litla systir hennar Miley Cyrus er enn og aftur komin í blöðin ekki vegna óviðeigandi Hrekkjavökubúnings heldur myndbands þar sem hún dansar við lagið hennar Ke$ha-Tik Tok sem tröllríður heiminum um þessar mundir og er að sjálfsögðu spilað hjá okkur Kristínu.
Noah sýnir takta sem kannski einhver aðeins eldri en 10 ára ætti frekar að sýna…en sitt sýnist hverjum

Like a glove!

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 11. janúar - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Þarf að segja meira?

Þessi reyndi að ferðast til Ameríku á fleka

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 8. janúar - 2010 Lokað fyrir athugasemdir
Flóttaflekinn mikli(mynd fengin af mbl.is)

Flóttaflekinn mikli(mynd fengin af mbl.is)

Já það er margt sem maður skilur ekki í þessum heimi, meðal annars þessi frétt sem við sáum inná mbl.is um tvo gæja sem ákváðu að búa til fleka til þess að svindla sér inn til Ameríku

Sjóvarpsþátta þemu vikunnar

Höfundur: Lísa Einars Skrifað þann 7. janúar - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Kristín fer að verða færari og færari í þessum sjónvarpsþáttarþemum…ég þarf að kafa dýpra í safnið

Þetta þema var hins vegar í allra fyrsta þættinum af Melrose Place(Pilot þættinum)…eins gott að þeir breyttu því!

Síðan var það þessi..

STYRKTARTÓNLEIKAR SKB Í HÁSKÓLABÍÓ 16.JANÚAR!

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 7. janúar - 2010 Lokað fyrir athugasemdir
Concert kynnir í samvinnu við EB Kerfi og Háskólabíó
* * * * * * * * * * * * * * * * * * * *
S T Ó R T Ó N L E I K A R   TÓLFTA  Á R I Ð   Í   R Ö Ð
TIL  STYRKTAR STYRKTARFÉLAGI KRABBAMEINSSJÚKRA BARNA,
H Á S K Ó L A B Í Ó I   1 6 .   J A N Ú A R   K L  1 6
* * * * * * * * * * * * * * * * * * * * *
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
INGÓ OG VEÐURGUÐIRNIR
BUFF,
HVANNADALSBRÆÐUR,
FRIÐRIK ÓMAR & JOGVAN
OG JÓHANNA GUÐRÚN HAFA STIMPLAÐ SIG INN

ENN BÆTIST Í HÓP FLYTJENDA OG ENDANLEGUR LISTI VERÐUR KYNNTUR FYRIR
HELGI

Það er orðinn árviss viðburður, að framvarðarsveit íslenskrar
popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói við Hagatorg og
stilli saman strengi til styrktar SKB. Árið í ár er engin undantekning
og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið eins glæsileg. Á
undanförnum árum hafa  yfir 30 milljónir króna safnast á þessum
tónleikum, og nú  er markmiðið að sú upphæð hækki í 32.5 milljónir
króna.

Tónleikarnir voru fyrst haldnir í desember árið 1998 en skipulagningin
hefur verið í höndum Einars Bárðarsonar. Hljóð- og ljósakerfi hefur
verið lánað af EB Kerfi á hverju ári frá upphafi og eins hefur
Háskólabíó lánað aðstöðuna endurgjaldslaust frá upphafi.

Að gefnu tilefni, er rétt að láta það fylgja, að á tónleikunum í
gegnum tíðina hefur komið fram rjómi þekktustu tónlistarmanna landsins
á  hverjum tíma og hafa allir þeir sem komið hafa að tónleikunum gefið
vinnu sína til fulls.  Um leið hafa allir tæknimenn og aðrir
starfsmenn tónleikanna gefið vinnu sína. Öll fyrirtæki, sem að
verkefninu hafa komið, hafa einnig gefið alla sína vinnu. Að
sjálfsögðu er engin breyting þar á.

Árlega greinast að meðaltali 10 - 12 börn og unglingar 18 ára og yngri
með krabbamein á Íslandi. Markmðið með stofnun Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna var m.a. að styðja við bakið á þeim og
aðstandendum þeirra bæði fjárhagslega og félagslega. Í upphafi hafði
félagið  takmarkað bolmagn til framkvæmda en úr rættist með stórri
landssöfnun 1993, þá var m.a. stofnaður neyðarsjóður sem meðlimir SKB
geta sótt um fjárstyrk úr. Fimm manna nefnd metur umsóknir og úthlutar
styrkjum en tengist SKB ekki að neinu öðru leyti.

Neyðarsjóðurinn er í raun tiltekin fjárupphæð sem stjórn SKB samþykkir
fyrir hvert starfsár. Sérstök úthlutunarnefnd fer síðan með umboð til
fjárveitinga úr styrktarsjóði SKB en skipulagsskrá fyrir hann er
staðfest af dómsmálaráðuneytinu. Einnig ákveður stjórn SKB þak á
hverja úthlutun. Hver félagsmaður í SKB má þó sækja um eins oft og
hann telur þörf á. Þess skal getið  að skila þarf inn ítarlegum
upplýsingum með hverri umsókn í neyðarsjóð svo úthlutunarnefnd fái
tekið vel  upplýstar og ígrundaðar ákvarðanir. Auk þessa aðstoðar
þjónustufulltrúi SKB hjá viðskiptabanka félagsins úthlutunarnefnd við
skoðun og mat á umsóknum.

Tónleikarnir fara fram í Háskólabíói laugardaginn 16. janúar hefjast
stundvíslega klukkan 16.00

MIÐASALA ER HAFIN Á MIDI.IS
A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110