Laugardagur 4. september 2010

Færslur mars, 2010

Kaninn í „Flash back“ gír alla páskana! Páskadagskráin hér

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 31. mars - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Það er partý á Kananum alla páskana. Við ætlum að vera í mega „flash-bakk“ gír og spila öll þessu gömlu og góðu bland við réttu Kana-tónana. Don Cano gallinn sprettur ljóslifandi fram úr skápnum og drengirnir í Wham og Duran Duran halda áfram að berjast um athyglina. Kana-liðið sér svo um að koma nýjustu fréttum og upplýsingum áleiðis til þín. Páska dagskrá Kanans er hægt að sjá hér.

Lestu restina af færslunni »

HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM PÁSKANA?

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 28. mars - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Kananum er mjög annt um að þú hlustandi góður hafir það gott um páskana og fyrir þá sem vilja lyfta sér upp þá er einna helst um tvennt að ræða. Annars vegar eru það Hvanndalsbræður sem verða með tónleika á Græna Hattinum, Akureyri miðvikudaginn 31.mars nk. kl.22 og mun Gulli Helga ásamt Gunnu Dís gefa miða. Vertu rétt stillt/ur til að tryggja þér miða á skemmtilegustu tónleika ársins.

Hins vegar er það síðan ball fyrir þá sálarþyrstu en hinir kornungu Sálar menn munu troða upp á sérstöku Kanaballi í Officera klúbbnum á sjálfan Páskadag. Húsið opnar á miðnætti og hefjast herlegheitin stuttu síðar. Sálarböllin í Officeraklúbbnum eru annáluð fyrir gleði og stuð og munu heppnir hlustendur Kanans að sjálfsögðu hreppa miða ef þeir eru rétt stillt/ir á réttum tíma.

Kaninn-Áfram Ísland og Gleðilega Páska!

TVÍHÖFÐI KVEÐUR EKKI!

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 23. mars - 2010 1 athugasemd

Kaninn vill minna á Tvíhöfða á laugardagsmorgnum kl.09 en um þessar mundir erum við að senda út „brot af því besta“ frá þeim köppum út marsmánuð og yfir páskana. Þá hefst framleiðsla á nýjum Tvíhöfða.

Tvíhöfði kemur síðan fílefldur og beittur strax eftir páska með glænýtt efni!

Kaninn-Áfram Ísland!

A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110