Laugardagur 4. september 2010

Færslur apríl, 2010

Tónlistarmaðurinn Ummi í viðtali hjá Gulla Helga

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 27. apríl - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Tónlistarmaðurinn „Ummi“ kíkti í spjall til Gulla Helga á dögunum og kynnti nýja plötu sem hann er að gefa út. Ummi er kannski hvað þekktastur fyrir að hafa verið í hinni víðfrægu hljómsveit Sólstrandargæjarnir á sínum tíma. Nú er hann á fullu að gera sitt eigið efni en hann gaf plötuna sín út á Vínyl sem er frekar óvenjulegt.  Hægt er að fá frekari upplýsingar um Umma á heimasíðunni hans, www.ummi.is.

IMG00050-20100416-1109[1] Lestu restina af færslunni »

GLEÐILEGT SUMAR!!

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 22. apríl - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Kaninn óskar öllum landsmönnum nær og fjær gleðilegt sumar. Megi sumarið verða eins frábært í tónlistinni og það hefur verið í vetur :)

 

Vertu rétt stillt/ur…

Kaninn-Áfram Ísland

SIGGI GUNNARS

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 13. apríl - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Siggi Gunnars er juniorinn á Kananum og nýjasti meðlimurinn. Hann er í loftinu öll föstudagskvöld milli 20-24 og alla laugardaga frá 13-17. Einnig er hann annar þáttastjórnanda í Egg og Beikon ásamt Einari Bárða alla virka morgna frá 06.50-10

Ekki missa af Sigga Gunnars á Kananum!

HLJÓMSVEITIN OFNÆMIR HJÁ SIGGA GUNNARS – MYNDIR

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 13. apríl - 2010 1 athugasemd

Þeir Kristján og Aron forsprakkar hljómsveitarinnar Ofnæmra frá Dalvík kíktu í höfuðstöðvar Kanans og spjölluðu við Sigga Gunnars. Siggi heldur því fram að þarna sé á ferðinni „The next big thing in sveitaballabransinn“. Í viðtalinu kynntumst við þessari hljómsveit, fengum að heyra lögin þeirra og svo tóku þeir Rangur Maður með Sólstrandargæjunum undir lokinn á gítarinn. Heimasíða hljómsveitarinnar er www.stjaron.is/ofnaemir Þar er hægt að kynnast hljómsveitinni betur og downloada lögunum þeirra.

Lestu restina af færslunni »

KANINN AFTUR Á FM100.5 Í BLÁFJÖLLUM -AÐFÖR AÐ VIÐKVÆMUM REKSTRI KÆRÐ TIL YFIRVALDA

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 13. apríl - 2010 1 athugasemd

Útsendingar Kanans á tíðninni FM100.5 hófust aftur síðdegis í gær en
þær höfðu legið niðri frá því klukkan 14:00 á föstudaginn. Þá höfðu
fulltrúar Lýðvarpsins brotið sér leið við erfiðar aðstæður upp á topp
Bláfjalla og fjarlægt sendi Kanans úr aðstöðu sem Kaninn leigir af
skíðasvæðinu í Bláfjöllum.

Eftir að eigendur Kanans tilkynntu brotið á skrifstofu Lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu og eftir skýrslutöku, hafði lögreglan samband við
fulltrúa Lýðvarpsins sem skilaði búnaðinum strax í kjölfarið. Þannig
að á því liggur engin vafi að fulltrúar Lýðvarpsins námu sendi Kanans
á brot.

Aftaka veður var á toppi Bláfjalla alla helgina og ótækt að reyna að
setja búnaðinn þar upp að nýju fyrr en í gærmorgun þegar veður var

töluvert skaplegra á toppnum. Málið er nú hjá Brynjari Nielsenlögmanni
Kanans sem er að fara yfir málið. Þessi uppákoma hefur kostað Kanann
hundruði þúsunda í óþarfa kostnað. Fyrir utan það að vera aðför að
viðkvæmum rekstri sem settur er af stað við erfiðar samfélagslegar aðstæður.

Póst og fjarskiptastofnun staðfesti í gærmorgun, það sem eigendur
Kanans vissu allann tímann, við alla sem að málinu komu að Kaninn er
eina útvarpsstöðin með önnur fullgild leyfi sem hefur þeirra leyfi til
útvarpssendinga á Bláfjallasvæðinu og sannarlega eina stöðin sem hefur
tíðnina FM100.5 á suðvestur horni landsins

FM100.5 næst á öllu suðvestur horninu frá Bláfjöllum í austur allt að
Fimm vörðu hálsi og frá Bláfjöllum að Rifi á Snæfellsnesti í vestur.
Þá er nær sendirinn yfir alla höfuðborgina og Reykjanesskagann
og alla þettbýlustu staði Suðurlands.

Eigendur Kanans vilja koma á framfæri þökkum til Lögreglu, Póst og
fjarskiptastofnun og starfsmanna Skíðasvæðisins í Bláfjöllum fyrir
góða samvinnu í málinu.

24540_377921858365_518353365_3809083_2975900_n

BLÁFJALLASENDIRINN KOMINN Í GAGNIÐ AFTUR!

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 12. apríl - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Sendirinn okkar í Bláfjöllum er kominn aftur í gagnið og er 100.5 betri en áður :)

 

Láttu orðið ganga…

 

Kaninn-Áfram Ísland

A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110