Laugardagur 4. september 2010

Færslur maí, 2010

FYRSTI SUMARHVELLURINN

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 30. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Kaninn vill þakka öllum þeim sem komu á fyrsta Sumarhvell sumarsins síðastliðinn laugardag í Smáralindinni

Einar Ágúst vann Hermann Hreiðarsson með naumindum í Segway rallýinu og bíðum við spennt eftir næsta laugardegi til að sjá hverjir munu etja saman kappi

Hér eru nokkrar myndir frá laugardeginum

sumarhvellur

Einar Ágúst og Kanaklappstýrurnar

sumarhvellur

Sigga Beinteins og Sigrún Eva ásamt Kanaklappstýrunum

sumarhvellur

Hvað er Sumarhvellur án Fanta, Svala og Goðapylsu?

sumarhvellur

Haffi Haff og Kanaklappstýrurnar

sumarhvellur

Davíð, Jóhanna Guðrún og Ingó

sumarhvellur

Ingó tryllti lýðinn

sumarhvellur

Jóhanna Guðrún að þenja raddböndin

sumarhvellur

Jóhanna Guðrún

sumarhvellur

Kanarnir, Kanaklappstýrurnar og Hermann Hreiðars

EUROVISION: JÓHANNA GUÐRÚN LES STIGIN FYRIR ÍSLAND Í KVÖLD

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 29. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Hún Jóhanna Guðrún mun sjá um það að lesa fyrir okkur stigin í kvöld. Hún stóð sig með stakri prýði eins og alltaf á rennslinu í dag. Takið eftir því að kynnir kvöldsins gerir góða tilraun til þess að tala íslensku! Vel af sér vikið! Áfram Ísland, við fögnum sigri í kvöld!

1c07fb6e31d7100217bd98bbead71585

EUROVISION: SPÁ SIGGA UM TOPP 10 – LÍKA VONDU LÖGIN

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 29. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Jæja þá er komið að því að spá aðeins í spilin fyrir kvöldið. Ákvað, þar sem er alveg ótrúlega mjótt á mununum að vera ekkert að setja niður í sæti heldur nefna bara þau lög sem verða í topp 10 í handahófskenndri röð.

Lestu restina af færslunni »

EUROVISION: SÍÐASTA ÆFING GEKK FRÁBÆRLEGA – ÍSLAND Í ÖÐRU SÆTI MEÐAL BLAÐAMANNA

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 29. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Hera og co voru rétt í þessu að klára sínu síðustu æfingu fyrir kvöldið. Ég sat hér í press-centerinu og horfði á æfingu á skjá og hún kom vægast sagt vel út. Við íslendingarnir hérna erum öll mjög bjartsýn fyrir kvöldið og svo virðist sem blaðamennirnir séu það líka en okkur er spáð öðru sæti í könnun hér í press-centerinu sem oft þykir nokkuð marktæk.  Súkkulaðidrengurinn sem er um 1,30 á hæð frá Ísrael er spáð sigri þar og það er svosem eitthvað sem ég get sætt mig við enda frábært lag og söngvari á ferðinni. Nú er bara að bíða og vona! Áfram Ísland! Hver veit, kannski verður þetta sögulegur dagur í íslandssögunni, Ísland vinnur Eurovision og Best-flokkurinn fær hreinan meirihluti í Reykjavík?

Lestu restina af færslunni »

EUROVISION: VIÐTÖLIN ÚR EGG OG BEIKON – HLUSTAÐU AFTUR HÉR

Höfundur: Siggi Gunnars Skrifað þann 29. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Hérna er hægt að hlusta á viðtölin sem ég hef tekið frá fimmtudegi til laugardagsins í dag. Ég hef átt því láni að fagna að hitta fullt af skemmtilegu fólki á meðan ég hef verið hérna úti og er ég afskaplega lukkulegur með það! Þakka öllu fyrir viðtölin og frábæran tíma!

Lestu restina af færslunni »

EKKI LÁTA ÞIG VANTA

Höfundur: Kaninn Skrifað þann 29. maí - 2010 Lokað fyrir athugasemdir

Kaninn og Síminn blása heldur betur til sóknar í sumar og ætla að fara með Sumarhvelli um landið með Skjá Einum. Aðaluppistaða ferðarinnar
verður verður ÍSLANDSRALLIÐ Á SEGWAY hjólum. Fyrsti Hvellurinn verður
í Vetrargarðinum Smáralind um helgina en í dag laugardaginn 29.maí, verður blásið í risa Eurovision partý. Stórhátíðin fer fram á milli 13:00 og 16:00
í Vetrargarðinum. Það verður engin byrjenda bragur á því – þar verða
Haffi Haff, Jóhanna Guðrún, Einar Ágúst, Jogvan og Ingó sem taka lagið
fyrir gesti og hlustendur. Svo keppa landsfrægir eintaklingar í
Segway Rallíunu. Gestir og gangandi fá boli, límmiða, plaköt, drykkir
og grillað góðmeti.

Lestu restina af færslunni »

A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110