Laugardagur 4. september 2010

Komiði sæl og blessuð.  Ég sit hér á heimili mínu í Þýskalandi og bíð þess að geta hafið útsendingar á Kananum.  Tæknin er undursamleg og gerir óperusöngvaranum kleift að vera með aðra hönd á hljóðnema þó hann þurfi starfa sinna vegna að vera búsettur á erlendri grundu.  En þegar tæknin er mögnuð getur hún verið flókin og í mörg horn er að líta, en tæknimenn Kanans eru að leggja lokahönd á þær tengingar sem þarf til að ég geti aftur farið að „tala í hátalarann.“  Þetta ætti að fara að gerast hvað á hverju.  Í millitíðinni æfi ég stíft fyrir óperu um kynóðan greifa, legg ekki meira á ykkur.

Both comments and pings are currently closed.

2 Athugasemdir

  1. http://blogg.visir.is/rannug/2009/09/11/eg-m%C3%A6tti-niggara/

    Lesa þetta í útvarpinu…

    Með bestu kveðju,
    Gunni Svínafari… sorry, Svíafari

  2. Gunnar Engblom þann 11. september, 2009 klukkan 20:35
  3. Sem sagt þá er maðurinn í hátalaranum fluttur til Þýskalands. En gott verður nú að heyra í þér í útvarpinu aftur.
    Dein Mutter

  4. María Magðalena Ásgeirsd þann 13. september, 2009 klukkan 21:46
A Gasfabrik Design Kaninn FM 100.5
Útsendingarsími: 571-1111.
Auglýsingasími: 511 1110