Konur hemja skapið með þrifum.
Kæra dagbók,
Ég verð að viðurkenna að stundum fæ ég samviskubit yfir því hvað ég get verið harður við konuna. Ég spurði hana í morgun hvernig hún færi að því að hemja reiðina yfir því hvað ég væri oft hastarlegur við hana. Hún var að vanda með svör á reiðum höndum, „Það er nú lítið mál. Ég þríf klósettskálina þegar ég er að alveg að springa.“ Ég verð að viðurkenna ég var ekki alveg að skilja tenginguna þarna á milli. “Hvernig rennur þér reiðin við að þrífa klósettskálina?“, spurði ég forvitinn og fann að nú kynntist ég enn einum leyndardómnum í fari kvenna. “Jú, sjáðu til“, sagði hún, „Ég nota tannburstann þinn og á einhvern óútskýranlegan svínvirkar það.“







HAHAHAH, köld eru kvenna ráð!
Þess vegna ertu svona andfúll ;)