Framhjáhald er hættulegt.
Kæra dagbók,
Ég hef komist að því að það borgar sig ekki að standa í framhjáhaldi. Ég lá í rúmi í nótt við hliðina á gullfallegri konu og um tvöleitið í nótt öskrar hún, „Guð minn góður, ég heyri í manninum mínum niðri, hann er kominn heim.“ Ég vaknaði með andfælum rauk á fætur, hentist í fötin á þeim ógnarhraða sem líkamsburðir mínir þola og rauk út. Ég var kominn út um útidyrahurðina þegar ég sneri við fór aftur til baka inn í íbúðina og sagði pirraður við konuna, „En ég er maðurinn þinn.“ Konan horfði á mig glottandi og spurði, „Bíddu, hvers vegna varstu þá að hlaupa út?“ Ég er búinn að vera að reyna að tala mig út úr þessu, án árangurs.







…að sama skapi má spyrja konuna þína hvaða hvatir lágu að baki þessum öskrum hennar um hánótt, sjálfræð viðbrögð…eða útspekúlrað test á karlinn eins og þú glettilega gefur til kynna ;)
-Velkominn á Kanans annars kæri útvarpsfélagi :o)
Hilsen,
Hvati
eg held mig a teirri skoðun að aðað tað fari eftir siðferðiskennd bæði beggja aðilla held að tað se virkilega erfitt hja manneskju með ghoða siðkennd að brjota tanning af ser og varla nær viðkomandi ekki að njota kannski nema ta bra lostans sem er ekkert annað en fikn eða gredda svo kölluð svo samviskan a eftir javnvel a meðan!svo ef hugsar er ut i afleiðingar hja maka sem fær tað i hausinn getur tað haft allavegana afleiðingar tortriggni og svo fram vegis andlegir kvillar til frambuðar ta er eg að tala um að’ baðir aðilar eru með gott siðgæði tanning ja tað er hættulegt svona hlutir geta farið allavega illa svo mar a að hugsa 2 um bra comment jakvætt kannski i sumum tilfell en tetta bra min speki