Bjarni Ólafur, eða Daddi eins og hann er kallaður, var í upphafscrew-i Bylgjunnar árið 1986 og hefur því verið í “bransanum” vel á þriðja áratuginn. Hann hefur dottið inn og út á Bylgjunni allan þann tíma, einkum vegna þess að hann gat ekki ákveðið hvort hann ætlaði að búa á Íslandi eða á Heimaey :) Nú hinsvegar er það klárt, því fjölskyldan komið sér vel fyrir í Eyjum og þaðan mun Daddi senda út þættina sína á Kananum. Reyndar hélt Daddi framhjá Bylgjunni í smá tíma árin 1995-1997 og var þá starfsmaður FM957 og Fíns miðils.
Einnig hefur kappinn gert talsvert af því að stýra veislum, hófum og öðrum mannamótum, meðal annars kynnt oftar en allir aðrir Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur og Íslands og Herra Ísland, ásamt því að stýra lokahófum KSÍ undanfarin ár.
Nú tilheyrir Daddi upphafscrew-i Kanans.
Daddi er í sumarfríi en snýr aftur í útvarpstæki landsmanna með haustinu!






